External Publication
Visit Post

Fyrsti leikmaðurinn sem Alonso kaupir

DV.is [Unofficial] July 1, 2026
Source
Chelsea hefur staðfest kaup á hægri bakverðinum Marco Palestra frá Atalanta. Chelsea greiðir um 47 milljónir punda fyrir þennan 21 árs gamla Ítala, að meðtöldum árangurstengdum greiðslum, en hann skrifaði undir sex ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár. Palestra er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Chelsea eftir að Xabi Alonso tók við sem stjóri. Leikmaðurinn kveðst spenntur fyrir því að spila undir hans stjórn. Palestra var valinn besti varnarmaður Serie A á síðustu leiktíð eftir að hafa slegið í gegn á láni hjá Cagliari.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...