External Publication
Visit Post

Nýr leikmaður Liverpool segir draum vera að rætast

DV.is [Unofficial] July 1, 2026
Source
Liverpool hefur formlega staðfest komu miðvarðarins Jeremy Jacquet frá franska félaginu Rennes. Þessi franski U21-landsliðsmaður skrifar undir fimm ára samning, en kaupverðið er sagt vera 55 milljónir punda auk allt að fimm milljóna í árangurstengdum greiðslum. Jacquet meiddist á öxl skömmu eftir að samkomulag náðist við hann í janúar en hefur lokið endurhæfingu og verður klár þegar undirbúningstímabil Liverpool hefst. „Þetta er draumur sem rætist. Þetta er risafélag og ég er mjög spenntur fyrir því að byrja,“ sagði Jacquet eftir undirskrift.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...