External Publication
Visit Post

Leikjaniðurröðun ensku úrvalsdeildarinnar gefin út - Meistararnir byrja gegn nýliðum og stórleikur í þriðju umferð

DV.is [Unofficial] June 19, 2026
Source
Leikjaniðurröðun ensku úrvalsdeildarinnar fyrir tímabilið 2026-2027 hefur verið opinberuð. Englandsmeistarar Arsenal hefja tímabilið á heimavelli gegn nýliðum Coventry föstudaginn 21. ágúst. Þetta verður fyrsti leikur Coventry í efstu deild í 25 ár. Liverpool byrjar nýtt tímabil undir stjórn Andoni Iraola á útivelli gegn Newcastle, en Manchester City tekur á móti Bournemouth í fyrsta leik eftir brottför Pep Guardiola. Chelsea, með Xabi Alonso í brúnni, heimsækir Fulham í Lundúnaslag í fyrstu umferðinni. Manchester United heimsækir þá nýliða Hull.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...