External Publication
Visit Post

Arsenal staðfestir kaupin eftir vel heppnaða lánsdvöl

DV.is [Unofficial] June 25, 2026
Source
Arsenal hefur virkjað kauprétt sinn á Piero Hincapie og gert lánssamning hans frá Bayer Leverkusen að varanlegum félagaskiptum. Hinn 24 ára gamli varnarmaður kom til Arsenal á láni síðasta sumar og átti stóran þátt í því að félagið varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár. Samkvæmt Sky Sports greiðir Arsenal um 34,5 milljónir punda fyrir Hincapie, eða sem nemur um 40 milljónum evra. Leikmaðurinn hefur skrifað undir fimm ára samning við Lundúnaliðið.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...