{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiemrmm3cgtqvwt2imghk7tpqo3zfdxysxq5l4kgigkhrwbtaen63u",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mplpqiflbbg2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreig7lxekfwnmoaps3e5mkdfegloiohnlyvrwb2hyva25fqkb4k3gnq"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 128212
  },
  "path": "/433/2026/07/01/fyrsti-leikmadurinn-sem-alonso-kaupir",
  "publishedAt": "2026-07-01T13:16:07.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Chelsea hefur staðfest kaup á hægri bakverðinum Marco Palestra frá Atalanta.\n\nChelsea greiðir um 47 milljónir punda fyrir þennan 21 árs gamla Ítala, að meðtöldum árangurstengdum greiðslum, en hann skrifaði undir sex ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár.\n\nPalestra er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Chelsea eftir að Xabi Alonso tók við sem stjóri. Leikmaðurinn kveðst spenntur fyrir því að spila undir hans stjórn.\n\nPalestra var valinn besti varnarmaður Serie A á síðustu leiktíð eftir að hafa slegið í gegn á láni hjá Cagliari.",
  "title": "Fyrsti leikmaðurinn sem Alonso kaupir"
}