External Publication
Visit Post

Ekki víst að leikur Mexíkó og Englands hefjist á tilsettum tíma

DV.is [Unofficial] July 3, 2026
Source
Þrumuveðri er spáð skömmu áður en enska landsliðið mætir því mexíkóska á honum sögufræga Azteca leikvangi í Mexíkóborg aðfaranótt mánudagsins. Um er að ræða leik í 16-liða úrslitum HM. Leikurinn á að hefjast á miðnætti en klukkustund áður á að vera þrumuveður ef marka má veðurspár. Gæti það leitt til þess að leiknum verði seinkað, líkt og gerðist þegar Mexíkó mætti Ekvador í 32-liða úrslitum. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum. Mexíkóska liðið hefur náð ótrúlegum árangri á Azteca síðustu ár og þá hefur liðið ekki fengið á sig mark á HM til þessa.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...