Stígur til hliðar eftir tapið í nótt
DV.is [Unofficial]
July 1, 2026
Sebastian Beccacece hefur látið af störfum sem landsliðsþjálfari Ekvador eftir að liðið féll úr leik gegn Mexíkó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Samningur argentínska þjálfarans rann út í kjölfar tapsins og hann hefur sjálfur ákveðið að gefa ekki kost á sér í starfið áfram.
Beccacece tók við landsliði Ekvador 2024 og fór vel af stað. Hann sætti hins vegar vaxandi gagnrýni fyrir ákvarðanir sínar á yfirstandandi HM.
Úrslitin gegn Mexíkó urðu að lokum til þess að hann hefur ákveðið að stíga til hliðar.
Discussion in the ATmosphere