Leyfir pöbbum að hafa opið langt fram eftir á sunnudag
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur kynnt neyðaráætlun sem gerir pöbbum og börum í Englandi og Wales kleift að hafa opið lengur fyrir leik Englands gegn Mexíkó á heimsmeistaramótinu.
England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum í Mexíkóborg aðfaranótt mánudags. Leikurinn hefst klukkan 01:00 að breskum tíma og gæti staðið til klukkan 04:00 ef framlengja þarf og vítaspyrnukeppni fer fram.
Til að koma til móts við stuðningsmenn mun ríkisstjórnin leggja fram neyðarlöggjöf sem framlengir leyfilegan opnunartíma staða með áfengisleyfi til klukkan 05:00.
Discussion in the ATmosphere