{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihcsxodqxxs3s2j264rsxq5u7qf56lnmn4i4ahtegzn46rrfdi3ym",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mprez5xxo4e2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibm7oy5zu77mokdqjhephg447q6gsvodrbg6mkiz3zoglhvcgxnpe"
    },
    "mimeType": "image/webp",
    "size": 143734
  },
  "path": "/433/2026/07/03/ekki-vist-ad-leikur-mexiko-og-englands-hefjist-a-tilsettum-tima",
  "publishedAt": "2026-07-03T19:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Þrumuveðri er spáð skömmu áður en enska landsliðið mætir því mexíkóska á honum sögufræga Azteca leikvangi í Mexíkóborg aðfaranótt mánudagsins.\n\nUm er að ræða leik í 16-liða úrslitum HM. Leikurinn á að hefjast á miðnætti en klukkustund áður á að vera þrumuveður ef marka má veðurspár.\n\nGæti það leitt til þess að leiknum verði seinkað, líkt og gerðist þegar Mexíkó mætti Ekvador í 32-liða úrslitum.\n\nMikil eftirvænting er fyrir leiknum. Mexíkóska liðið hefur náð ótrúlegum árangri á Azteca síðustu ár og þá hefur liðið ekki fengið á sig mark á HM til þessa.",
  "title": "Ekki víst að leikur Mexíkó og Englands hefjist á tilsettum tíma"
}