External Publication
Visit Post

Roy Keane spáir því hvenær England dettur úr leik á HM

DV.is [Unofficial] July 3, 2026
Source
Roy Keane telur að England muni komast framhjá Mexíkó í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en að liðið falli úr leik í átta liða úrslitum. Englendingar sluppu með skrekkinn gegn Kongó í 32-liða úrslitum þar sem þeir lentu undir snemma leiks. Harry Kane bjargaði liði Thomas Tuchel með tveimur mörkum á lokakaflanum og tryggði 2-1 sigur. Með sigrinum komust Englendingar áfram í 16-liða úrslit þar sem þeir mæta Mexíkó á Azteca-leikvanginum í Mexíkóborg. Þar bíður erfið áskorun þar sem leikurinn fer fram í mikilli hæð, í um 2.240 metrum yfir sjávarmáli.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...