{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiayc4zg3a3adrhm54oiyzhu3y2cfqloo6dgel33bjjrgkdslb2i6i",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqdgb547pv2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreidnivwkotpfhxy47xcxgkulz46sqnkiwmerrhe7l2io3fhokof62e"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 337109
  },
  "path": "/433/2026/07/02/roy-keane-spair-thvi-hvenaer-england-dettur-ur-leik-a-hm",
  "publishedAt": "2026-07-03T09:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Roy Keane telur að England muni komast framhjá Mexíkó í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en að liðið falli úr leik í átta liða úrslitum.\n\nEnglendingar sluppu með skrekkinn gegn Kongó í 32-liða úrslitum þar sem þeir lentu undir snemma leiks. Harry Kane bjargaði liði Thomas Tuchel með tveimur mörkum á lokakaflanum og tryggði 2-1 sigur.\n\nMeð sigrinum komust Englendingar áfram í 16-liða úrslit þar sem þeir mæta Mexíkó á Azteca-leikvanginum í Mexíkóborg. Þar bíður erfið áskorun þar sem leikurinn fer fram í mikilli hæð, í um 2.240 metrum yfir sjávarmáli.",
  "title": "Roy Keane spáir því hvenær England dettur úr leik á HM"
}