Kane skaut enska landsliðinu áfram í 16 liða úrslit
DV.is [Unofficial]
July 1, 2026
England tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 2-1 sigri á Kongó eftir magnaða endurkomu í 32-liða úrslitunum.
Kongó kom öllum á óvart þegar Brian Cipenga kom liðinu yfir strax á 7. mínútu. Djed Spence missti þá mann sinn og Cipenga nýtti sér það til að skora af öryggi.
Englendingar sóttu stíft það sem eftir lifði leiks en Kongó-verjar vörðust af mikilli hörku og héldu forystunni allt fram á 75. mínútu. Þá jafnaði Harry Kane metin með glæsilegum skalla eftir nákvæma fyrirgjöf frá Anthony Gordon.
Discussion in the ATmosphere