External Publication
Visit Post

Auknar líkur á því að Rashford verði áfram hjá United

DV.is [Unofficial] July 2, 2026
Source
Marcus Rashford gæti fengið tækifæri til að bjarga ferli sínum hjá Manchester United eftir jákvæðar viðræður milli félagsins og fulltrúa leikmannsins. Samkvæmt Mirror hafa viðræður að undanförnu verið uppbyggilegar og nú er ekki útilokað að Rashford verði áfram á Old Trafford, þrátt fyrir mikla óvissu um framtíð hans í sumar. Rashford hefur verið orðaður við brottför frá félaginu en staða hans gæti breyst ef hann nær að sannfæra Michael Carrick og þjálfarateymi United um að hann eigi enn framtíð hjá félaginu.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...