{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreicpkpwqp4xrilufs5ck42n75a6ui5k62har76cmxz4w5cfixg6ebm",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpnsug5blno2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreiah25zkzfkoid2mubm7jzxpomus2ijmbc6f2vpmzeyehgntsbqilm"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 88222
},
"path": "/433/2026/07/01/auknar-likur-a-thvi-ad-rashford-verdi-afram-hja-united",
"publishedAt": "2026-07-02T10:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Marcus Rashford gæti fengið tækifæri til að bjarga ferli sínum hjá Manchester United eftir jákvæðar viðræður milli félagsins og fulltrúa leikmannsins.\n\nSamkvæmt Mirror hafa viðræður að undanförnu verið uppbyggilegar og nú er ekki útilokað að Rashford verði áfram á Old Trafford, þrátt fyrir mikla óvissu um framtíð hans í sumar.\n\nRashford hefur verið orðaður við brottför frá félaginu en staða hans gæti breyst ef hann nær að sannfæra Michael Carrick og þjálfarateymi United um að hann eigi enn framtíð hjá félaginu.",
"title": "Auknar líkur á því að Rashford verði áfram hjá United"
}