Framtíð leikmanns Liverpool í lausu lofti
DV.is [Unofficial]
July 2, 2026
Framtíð Curtis Jones hjá Liverpool er enn í mikilli óvissu, en enn er möguleiki á að hann verði áfram.
Samkvæmt Liverpool Echo gæti miðjumaðurinn nú verið opinn fyrir því að vera áfram á Anfield þar sem áhugi annarra félaga hefur ekki verið eins og hann hafði búist við.
Inter hefur ekki tök á að ganga að 30 milljóna punda verðmiðanum sem Liverpool hefur skellt á Jones.
Nottingham Forest hefur einnig áhuga á honum og gæti líklega greitt uppsett verð. Jones er þó ekki eins spenntur fyrir skiptum þangað.
Discussion in the ATmosphere