External Publication
Visit Post

Auknar líkur á að hann verði áfram hjá Liverpool

DV.is [Unofficial] July 3, 2026
Source

Curtis Jones gæti orðið áfram hjá Liverpool í sumar þrátt fyrir áhuga frá bæði Nottingham Forest og Inter Milan.

Samkvæmt Liverpool Echo er enski miðjumaðurinn tregur til að ganga til liðs við Nottingham Forest, sem hefur sýnt honum áhuga. Þá er Inter Milan ekki talið geta mætt verðmiðanum sem Liverpool hefur sett á leikmanninn.

Jones, sem er 25 ára gamall, hefur verið orðaður við brottför frá Anfield eftir að samkeppnin á miðsvæðinu jókst. Hann er uppalinn hjá Liverpool og hefur verið í aðalliðshópi félagsins undanfarin ár.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...