Halda því fram að tilboði Arsenal hafi verið hafnað
DV.is [Unofficial]
June 30, 2026
Bournemouth hefur hafnað fyrirspurn frá Arsenal um miðjumanninn Alex Scott og hefur gert það ljóst að leikmaðurinn sé ekki til sölu í sumar.
Samkvæmt fréttum The Sun hefur Arsenal sýnt 22 ára Englendingnum mikinn áhuga, en forráðamenn Bournemouth vilja ekki missa einn af lykilmönnum sínum.
Scott er einnig sagður vera á óskalista nokkurra annarra enskra stórliða. Manchester City, Manchester United, Tottenham Hotspur og Chelsea fylgjast öll grannt með stöðu hans og gætu reynt að fá hann til sín síðar í félagaskiptaglugganum.
Discussion in the ATmosphere