{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreibk37r7uiu3yc4axjyjm5wx5c6b3me4wqwmro2vc4morbbgy2ema4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpjfvffc3su2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreigifexde2ex3rkihoe6jgtnxvthcubqhjxkbqnsgl3hqiozueuh6u"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 228619
  },
  "path": "/433/2026/06/30/halda-thvi-fram-ad-tilbodi-arsenal-hafi-verid-hafnad",
  "publishedAt": "2026-06-30T15:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Bournemouth hefur hafnað fyrirspurn frá Arsenal um miðjumanninn Alex Scott og hefur gert það ljóst að leikmaðurinn sé ekki til sölu í sumar.\n\nSamkvæmt fréttum The Sun hefur Arsenal sýnt 22 ára Englendingnum mikinn áhuga, en forráðamenn Bournemouth vilja ekki missa einn af lykilmönnum sínum.\n\nScott er einnig sagður vera á óskalista nokkurra annarra enskra stórliða. Manchester City, Manchester United, Tottenham Hotspur og Chelsea fylgjast öll grannt með stöðu hans og gætu reynt að fá hann til sín síðar í félagaskiptaglugganum.",
  "title": "Halda því fram að tilboði Arsenal hafi verið hafnað"
}