External Publication
Visit Post

United setur stefnuna á Julian Alvarez samkvæmt fréttum

DV.is [Unofficial] June 26, 2026
Source
Manchester United hefur haft beint samband við fulltrúa argentínska framherjans Julián Álvarez til að kanna möguleg félagaskipti í sumar, samkvæmt frétt Mirror. Álvarez, sem leikur með Atlético Madrid, hefur verið orðaður við brottför undanfarna mánuði og er einn eftirsóttasti sóknarmaður Evrópu um þessar mundir. United er þó ekki eina félagið sem hefur áhuga á heimsmeistaranum. Arsenal, Barcelona og Real Madrid eru einnig sögð fylgjast grannt með stöðu hans og gætu öll lagt fram tilboð ef ljóst verður að Atlético sé tilbúið að selja.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...