External Publication
Visit Post

Liverpool skellir upp verðmiða eftir að hafa hafnað fyrsta tilboði

DV.is [Unofficial] June 22, 2026
Source
Liverpool hefur hafnað munnlegu tilboði frá Inter Mílanó í miðjumanninn Curtis Jones samkvæmt fréttum frá The Athletic. Ítalska félagið bauð 25 milljónir evra, sem samsvarar um 21,7 milljónum punda, í enska landsliðsmanninn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Inter reynir að fá Jones til félagsins, en Liverpool hafnaði einnig fyrra tilboði frá Serie A-risunum. Forráðamenn Liverpool meta hinn 25 ára gamla miðjumann á um 35 milljónir punda og eru því ekki tilbúnir að samþykkja tilboð sem eru langt undir því verðmati.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...