Eru að sigra kapphlaupið við Liverpool
DV.is [Unofficial]
June 29, 2026
Paris Saint-Germain virðist vera að vinna kapphlaupið um Yan Diomande hjá RB Leipzig. Frá þessu greina helstu miðlar.
Diomande er eftirsóttur kantmaður sem hefur einnig verið sterklega orðaður við Liverpool. Hann hefur hins vegar samþykkt fimm ára samning hjá PSG.
Leipzig og PSG eiga þó enn í viðræðum um kaupverðið, sem verður um eða yfir 100 milljónir evra.
Diomande, sem er aðeins 19 ára gamall, heillaði mikið með Leipzig á sinni fyrstu leiktíð eftir að hann kom síðasta sumar.
Discussion in the ATmosphere