Gerir kröfu á það að fá að fara í sumar - Vill fara til PSG en Liverpool hefur líka áhuga
DV.is [Unofficial]
June 30, 2026
Yan Diomande, sóknarmaður RB Leipzig, segist búast við því að yfirgefa þýska félagið í sumar.
Hinn ungi landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar hefur verið sterklega orðaður við bæði Paris Saint-Germain og Liverpool að undanförnu, en áhugi á honum hefur aukist eftir góða frammistöðu á heimsmeistaramótinu.
Diomande ræddi framtíð sína fyrir leik Fílabeinsstrandarinnar gegn Noregi í 32-liða úrslitum HM.
„Fyrst og fremst er draumur minn að spila fyrir þjóðina mína og skrifa sögu með henni,“ sagði hann.
Discussion in the ATmosphere