Amorim og Mason Mount gætu sameinast á ný
DV.is [Unofficial]
June 30, 2026
Mason Mount, miðjumaður Manchester United, hefur verið boðinn AC Milan samkvæmt fréttum frá Ítalíu.
MilanPress greinir frá því að möguleg félagaskipti gætu sameinað Mount á ný við Ruben Amorim, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United, sem nú er orðaður við AC Milan.
Hinn 27 ára gamli Mount hefur átt erfitt með að festa sig í sessi á Old Trafford eftir komuna frá Chelsea og framtíð hans hjá félaginu er óljós. United gæti verið tilbúið að skoða möguleika á sölu ef rétt tilboð berst.
Discussion in the ATmosphere