{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiej3imtzsieael3n3eiqh4lhlphjffjimeexnm4a6teouro5zve24",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp7dkphwrwl2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreiaofbc32ujdhwxna72bauu7j3m6wl6npwwjbuspgw7duvntn2523q"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 177603
  },
  "path": "/433/2026/06/26/united-setur-stefnuna-a-julian-alvarez-samkvaemt-frettum",
  "publishedAt": "2026-06-26T15:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Manchester United hefur haft beint samband við fulltrúa argentínska framherjans Julián Álvarez til að kanna möguleg félagaskipti í sumar, samkvæmt frétt Mirror.\n\nÁlvarez, sem leikur með Atlético Madrid, hefur verið orðaður við brottför undanfarna mánuði og er einn eftirsóttasti sóknarmaður Evrópu um þessar mundir.\n\nUnited er þó ekki eina félagið sem hefur áhuga á heimsmeistaranum. Arsenal, Barcelona og Real Madrid eru einnig sögð fylgjast grannt með stöðu hans og gætu öll lagt fram tilboð ef ljóst verður að Atlético sé tilbúið að selja.",
  "title": "United setur stefnuna á Julian Alvarez samkvæmt fréttum"
}