Real Madrid ætlar að fara að opna samtalið
DV.is [Unofficial]
June 24, 2026
Real Madrid hefur sett argentínska miðjumanninn Enzo Fernández efst á óskalista sinn fyrir sumargluggann og hyggst hefja formlegar viðræður við Chelsea um möguleg félagaskipti, samkvæmt AS á Spáni.
Fernández, sem er 25 ára gamall og leikur nú með argentínska landsliðinu á heimsmeistaramótinu, hefur verið einn af lykilmönnum Chelsea undanfarin tímabil. Miðjumaðurinn kom til Lundúna frá Benfica í risakaupum árið 2023 og hefur síðan fest sig í sessi sem einn besti leikstjórnandi ensku úrvalsdeildarinnar.
Discussion in the ATmosphere