Ætlar að reynast Liverpool erfitt að fá sitt helsta skotmark
DV.is [Unofficial]
June 26, 2026
Liverpool virðist enn eiga langt í land með að tryggja sér Yan Diomande frá RB Leipzig ef marka má fréttir frá Þýskalandi.
Samkvæmt Bild hefur Leipzig hafnað uppfærðu tilboði Liverpool sem nam rúmlega 100 milljónum punda. Rauðu höfðu áður lagt fram 87 milljóna punda tilboð í hinn 19 ára gamla kantmann, en því var einnig hafnað.
Leipzig virðist staðráðið í að halda í Fílabeinsstrendinginn eða fá enn hærri upphæð fyrir hann. Diomande er talinn einn efnilegasti ungi sóknarmaður Evrópu og hefur vakið mikla athygli eftir sterka frammistöðu á heimsmeistaramótinu.
Discussion in the ATmosphere