{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreib3brdbyepx6z3v3ewa4bfz4ccauhcuffyd7kpynfws66wm4l7nmq",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp6pgvxldhr2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreigyfqffe526odhjvbp3fu7j3ouhz6gncplcknv4oan5juy44pxhea"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 103895
},
"path": "/433/2026/06/25/aetlar-ad-reynast-liverpool-erfitt-ad-fa-sitt-helsta-skotmark",
"publishedAt": "2026-06-26T09:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Liverpool virðist enn eiga langt í land með að tryggja sér Yan Diomande frá RB Leipzig ef marka má fréttir frá Þýskalandi.\n\nSamkvæmt Bild hefur Leipzig hafnað uppfærðu tilboði Liverpool sem nam rúmlega 100 milljónum punda. Rauðu höfðu áður lagt fram 87 milljóna punda tilboð í hinn 19 ára gamla kantmann, en því var einnig hafnað.\n\nLeipzig virðist staðráðið í að halda í Fílabeinsstrendinginn eða fá enn hærri upphæð fyrir hann. Diomande er talinn einn efnilegasti ungi sóknarmaður Evrópu og hefur vakið mikla athygli eftir sterka frammistöðu á heimsmeistaramótinu.",
"title": "Ætlar að reynast Liverpool erfitt að fá sitt helsta skotmark"
}