External Publication
Visit Post

Veskið á lofti hjá Tottenham - Vilja kaupa annan frá West Ham

DV.is [Unofficial] July 3, 2026
Source
Tottenham ætlar að reyna að fá hollenska sóknarmanninn Crysencio Summerville frá West Ham í sumar, samkvæmt GiveMeSport. Summerville, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við West Ham frá Leeds en gæti nú verið á leið annað eftir fall félagsins úr úrvalsdeildinni. Tottenham er sagt hafa mikinn áhuga á að styrkja sóknarlínu sína og telur Summerville passa vel inn í leikstíl liðsins. Spurs hefur þegar sótt einn leikmann til West Ham í sumar, portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes, sem er 21 árs gamall. Nú gæti félagið því farið aftur á sömu slóðir.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...