{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreifvpvo2jp4pio4voz5tjkfsvmjs6pcsoxe3dqu5z3zdldieruu4hi",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqxk7ir3eq2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreieuqhdneshxy5nudh3575nomv5vzczxdejzlb3vivds4ebui7pobe"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 186898
},
"path": "/433/2026/07/02/veskid-a-lofti-hja-tottenham-vilja-kaupa-annan-fra-west-ham",
"publishedAt": "2026-07-03T16:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Tottenham ætlar að reyna að fá hollenska sóknarmanninn Crysencio Summerville frá West Ham í sumar, samkvæmt GiveMeSport.\n\nSummerville, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við West Ham frá Leeds en gæti nú verið á leið annað eftir fall félagsins úr úrvalsdeildinni. Tottenham er sagt hafa mikinn áhuga á að styrkja sóknarlínu sína og telur Summerville passa vel inn í leikstíl liðsins.\n\nSpurs hefur þegar sótt einn leikmann til West Ham í sumar, portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes, sem er 21 árs gamall. Nú gæti félagið því farið aftur á sömu slóðir.",
"title": "Veskið á lofti hjá Tottenham - Vilja kaupa annan frá West Ham"
}