Gæti Van Dijk farið frá Liverpool í sumar?
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
Virgil van Dijk gæti yfirgefið Liverpool í óvæntum félagaskiptum í sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport hefur AC Milan gert hollenska miðvörðinn að einu helsta skotmarki sínu í sumar. Milan hefur þegar tryggt sér Gonçalo Ramos frá PSG og vill næst styrkja miðvarðarstöðuna.
Zlatan Ibrahimovic, sem starfar sem ráðgjafi hjá ítalska félaginu, er sagður mjög hrifinn af Van Dijk og hafa bent forráðamönnum Milan á að hann sé rétti maðurinn til að leiða vörn liðsins.
Discussion in the ATmosphere