Umdeilda regla á HM verður ekki notuð í Evrópukeppnum
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
UEFA hefur staðfest að umdeild regla sem hefur verið í gildi á heimsmeistaramótinu verði ekki notuð í Evrópukeppnum félagsliða á næsta tímabili.
Reglan snýr að því þegar leikmenn hylja munninn á sér í samskiptum við mótherja. FIFA innleiddi hana á HM til að reyna að koma í veg fyrir að leikmenn gætu falið óviðeigandi ummæli á vellinum.
Reglan hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni á mótinu. Miguel Almiron hjá Paragvæ var rekinn af velli fyrir að hylja munninn í samskiptum við mótherja og Piero Hincapie fékk einnig rautt spjald í leik Ekvador gegn Mexíkó.
Discussion in the ATmosphere