External Publication
Visit Post

Sviptur fjölmiðlapassanum sínum á HM - Sakaði FIFA um að skemma leikinn

DV.is [Unofficial] June 23, 2026
Source
Paragvæski íþróttalýsandinn Jorge Vera hefur verið sviptur fjölmiðlaaðgangi sínum að Heimsmeistaramótinu eftir harkalegt reiðikast í beinni útsendingu í kjölfar sigurs Paragvæ á Tyrklandi. Atvikið átti sér stað eftir að Miguel Almirón fékk rautt spjald í 1-0 sigri Paragvæ á Tyrklandi í riðlakeppni mótsins. Almirón varð þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu Heimsmeistaramótsins til að vera rekinn af velli fyrir að hylja munn sinn í samskiptum við andstæðing. Reglan var tekin upp til að koma í veg fyrir að leikmenn gætu falið möguleg kynþáttafordóma- eða hatursorðræðu.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...