{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiffg3hawhpr2bfdjxrqva2cgbwln27e55bi23wi3vwdynso3srsm4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqqtcbxbpp2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibws2gyzdrlcespmbbjt5imch42w5csg5urrby4t4fc4vh65fq3ry"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 140776
  },
  "path": "/433/2026/07/02/umdeilda-regla-a-hm-verdur-ekki-notud-i-evropukeppnum",
  "publishedAt": "2026-07-03T13:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "UEFA hefur staðfest að umdeild regla sem hefur verið í gildi á heimsmeistaramótinu verði ekki notuð í Evrópukeppnum félagsliða á næsta tímabili.\n\nReglan snýr að því þegar leikmenn hylja munninn á sér í samskiptum við mótherja. FIFA innleiddi hana á HM til að reyna að koma í veg fyrir að leikmenn gætu falið óviðeigandi ummæli á vellinum.\n\nReglan hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni á mótinu. Miguel Almiron hjá Paragvæ var rekinn af velli fyrir að hylja munninn í samskiptum við mótherja og Piero Hincapie fékk einnig rautt spjald í leik Ekvador gegn Mexíkó.",
  "title": "Umdeilda regla á HM verður ekki notuð í Evrópukeppnum"
}