Tottenham búið að eyða tæpum 250 milljónum punda í sumar
DV.is [Unofficial]
July 2, 2026
Tottenham heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn af krafti og stefnir í að verja alls um 237 milljónum punda í félagaskiptum í sumar.
Félagið er sagt vera við það að ganga frá kaupum á Sandro Tonali og Mateus Fernandes fyrir samanlagt um 185 milljónir punda. Áður hafði Tottenham fest kaup á Jan Paul van Hecke frá Brighton fyrir 52 milljónir punda auk þess sem Andy Robertson, Marcos Senesi og Martin Dúbravka komu til félagsins á frjálsri sölu.
Discussion in the ATmosphere