Þetta er upphæðin sem City greiðir fyrir Anderson - Dýrasti enski leikmaður sögunnar
DV.is [Unofficial]
June 26, 2026
Manchester City hefur náð samkomulagi við Nottingham Forest um kaup á enska landsliðsmanninum Elliot Anderson í félagaskiptum sem fara í sögubækurnar.
Samkvæmt enskum miðlum nemur kaupverðið um 116 milljónum punda. Það gerir Anderson að dýrasta enska leikmanni allra tíma og slær fyrra met Declan Rice, sem Arsenal greiddi 105 milljónir punda fyrir árið 2023.
Kaupverðið verður jafnframt hæsta upphæð sem Manchester City hefur nokkru sinni greitt fyrir leikmann og fer fram úr 100 milljóna punda kaupum félagsins á Jack Grealish árið 2021.
Discussion in the ATmosphere