{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreigzhqstm7ieztg2fdt7ll6hjfahyrgftmrwyokkc2k2i4nqgz6omi",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpogyesxpkl2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreie4e5koj4jssn2vdazlbl55jbden74wdlh4xjsv7iatujqsskbgq4"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 140247
},
"path": "/433/2026/07/02/tottenham-buid-ad-eyda-taepum-250-milljonum-punda-i-sumar",
"publishedAt": "2026-07-02T16:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Tottenham heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn af krafti og stefnir í að verja alls um 237 milljónum punda í félagaskiptum í sumar.\n\nFélagið er sagt vera við það að ganga frá kaupum á Sandro Tonali og Mateus Fernandes fyrir samanlagt um 185 milljónir punda. Áður hafði Tottenham fest kaup á Jan Paul van Hecke frá Brighton fyrir 52 milljónir punda auk þess sem Andy Robertson, Marcos Senesi og Martin Dúbravka komu til félagsins á frjálsri sölu.",
"title": "Tottenham búið að eyða tæpum 250 milljónum punda í sumar"
}