Óvænt nafn sagt á óskalista Liverpool
DV.is [Unofficial]
July 2, 2026
Liverpool heldur áfram leit sinni að nýjum kantmanni fyrir komandi tímabil og samkvæmt Daily Express er belgíski sóknarmaðurinn Matias Fernandez-Pardo kominn á óskalista félagsins.
Fernandez-Pardo er 21 árs gamall og leikur með franska félaginu Lille. Hann getur leyst fleiri en eina stöðu í framlínunni en hefur helst gert það gott á vinstri kantinum.
Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, er sagður vilja bæta við fleiri sóknarmönnum eftir brotthvarf Mohamed Salah, sem yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út í sumar.
Discussion in the ATmosphere