Mourinho vill reyna að kaupa varnarmann Arsenal
DV.is [Unofficial]
June 23, 2026
Real Madrid hefur að sögn hafið könnun á mögulegum kaupum á varnarmanninum Piero Hincapié.
Nýr knattspyrnustjóri félagsins, José Mourinho, er sagður hafa miklar mætur á leikmanninum sem getur leyst bæði stöðu vinstri bakvarðar og miðvarðar.
Real Madrid hefur þegar styrkt varnarlínuna í sumar með komu Ibrahima Konaté á frjálsri sölu eftir brottför hans frá Liverpool. Mourinho vill þó bæta enn frekar við breiddina í hópnum fyrir komandi tímabil.
Discussion in the ATmosphere