{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihuwob4uqexkw5xqx55cuptw3xkq2kurzq7t5os6c75yqake5esb4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpnsuuch52y2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreifpfx46nzv7gnqb5ajz65yxz4kyhrb553i62nlncdg6tm2tyyapia"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 57371
  },
  "path": "/433/2026/07/01/ovaent-nafn-sagt-a-oskalista-liverpool",
  "publishedAt": "2026-07-02T09:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool heldur áfram leit sinni að nýjum kantmanni fyrir komandi tímabil og samkvæmt Daily Express er belgíski sóknarmaðurinn Matias Fernandez-Pardo kominn á óskalista félagsins.\n\nFernandez-Pardo er 21 árs gamall og leikur með franska félaginu Lille. Hann getur leyst fleiri en eina stöðu í framlínunni en hefur helst gert það gott á vinstri kantinum.\n\nAndoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, er sagður vilja bæta við fleiri sóknarmönnum eftir brotthvarf Mohamed Salah, sem yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út í sumar.",
  "title": "Óvænt nafn sagt á óskalista Liverpool"
}