{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreianrxsvu67i2kyhqvxkb2st4rqsubs7s627dqeb3dnwlbb45t3lum",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpmdugkknls2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibxeyiqd75usyhemxo7y64c7rezajxnk6r5y7rca2iadp66u3woke"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 589965
  },
  "path": "/433/2026/07/01/kane-skaut-enska-landslidinu-afram-i-16-lida-urslit",
  "publishedAt": "2026-07-01T19:39:55.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "England tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 2-1 sigri á Kongó eftir magnaða endurkomu í 32-liða úrslitunum.\n\nKongó kom öllum á óvart þegar Brian Cipenga kom liðinu yfir strax á 7. mínútu. Djed Spence missti þá mann sinn og Cipenga nýtti sér það til að skora af öryggi.\n\nEnglendingar sóttu stíft það sem eftir lifði leiks en Kongó-verjar vörðust af mikilli hörku og héldu forystunni allt fram á 75. mínútu. Þá jafnaði Harry Kane metin með glæsilegum skalla eftir nákvæma fyrirgjöf frá Anthony Gordon.",
  "title": "Kane skaut enska landsliðinu áfram í 16 liða úrslit"
}