External Publication
Visit Post

Sannfærandi hjá Frökkum gegn Svíum

DV.is [Unofficial] June 30, 2026
Source
Frakkar eru komnir í 16-liða úrslit eftir afar sannfærandi sigur á Svíum í 32-liða úrslitum í kvöld. Svíar komu inn í leikinn af krafti en fljótlega tók franska liðið öll völd og komst það yfir seint í fyrri hálfleik með marki Kylian Mbappe. Bradley Barcola tvöfaldaði forskotið snemma í seinni hálfleik áður en Mbappe var aftur á ferðinni með mark þegar um stundarfjórðungur lifði leiks. Lokatölur 3-0. Frakkland flýgur því áfram og mætir Paragvæ í 16-liða úrslitunum.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...