Víkingar pökkuðu Blikum saman í Kópavogi
DV.is [Unofficial]
June 25, 2026
Víkingur Reykjavík vann öruggan 4-1 útisigur á Breiðabliki í eina leik Bestu deildarinnar í kvöld og er nú með níu stiga forskot á toppi deildarinnar.
Gestirnir byrjuðu af krafti og Helgi Guðjónsson kom Víkingi yfir strax á 8. mínútu. Staðan var 0-1 í hálfleik en Víkingar tóku öll völd eftir hlé.
Aron Elís Þrándarson tvöfaldaði forystuna á 63. mínútu áður en Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnu sex mínútum síðar. Helgi bætti síðan við sínu öðru marki á 75. mínútu og kom Víkingi í 4-0.
Discussion in the ATmosphere