{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreidldqxymgdjmo32t4wwunzqvtdpnnczfiv5pqlyx4oqxm5lxztnfq",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpkaqcrxg7e2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreifldwd3zru3tzdvflygtnpfwwm2orp56a6o3qbg2hfcwkebh3kz54"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 127375
  },
  "path": "/433/2026/06/30/sannfaerandi-hja-frokkum-gegn-svium",
  "publishedAt": "2026-06-30T22:54:19.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Frakkar eru komnir í 16-liða úrslit eftir afar sannfærandi sigur á Svíum í 32-liða úrslitum í kvöld.\n\nSvíar komu inn í leikinn af krafti en fljótlega tók franska liðið öll völd og komst það yfir seint í fyrri hálfleik með marki Kylian Mbappe.\n\nBradley Barcola tvöfaldaði forskotið snemma í seinni hálfleik áður en Mbappe var aftur á ferðinni með mark þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.\n\nLokatölur 3-0. Frakkland flýgur því áfram og mætir Paragvæ í 16-liða úrslitunum.",
  "title": "Sannfærandi hjá Frökkum gegn Svíum"
}