Rosenior gæti verið að landa áhugaverðu starfi
DV.is [Unofficial]
June 30, 2026
Liam Rosenior er í formlegum viðræðum við Paris FC um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins samkvæmt upplýsingum frá félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.
Rosenior á að hafa rætt tveggja ára samning við franska félagið, sem leitar að eftirmanni Antoine Kombouaré á varamannabekknum. Viðræður eru sagðar á lokastigi en enn á eftir að ganga frá smáatriðum, meðal annars um möguleika á eins árs framlengingu á samningnum.
Paris FC bindur vonir við að ná samkomulagi á næstu dögum og fá Rosenior til starfa fyrir undirbúning nýs tímabils.
Discussion in the ATmosphere