{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreib6mkvcroafwkrb6h746fj7ceqjf5klvtjr5aqsbt4dtxvotc2k3y",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpikzl2ljd42"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreie5e6icz26tszceun4f6nqzwy462qayz62hob6km5qhrfugi5nvc4"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 73334
},
"path": "/433/2026/06/29/rosenior-gaeti-verid-ad-landa-ahugaverdu-starfi",
"publishedAt": "2026-06-30T08:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Liam Rosenior er í formlegum viðræðum við Paris FC um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins samkvæmt upplýsingum frá félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.\n\nRosenior á að hafa rætt tveggja ára samning við franska félagið, sem leitar að eftirmanni Antoine Kombouaré á varamannabekknum. Viðræður eru sagðar á lokastigi en enn á eftir að ganga frá smáatriðum, meðal annars um möguleika á eins árs framlengingu á samningnum.\n\nParis FC bindur vonir við að ná samkomulagi á næstu dögum og fá Rosenior til starfa fyrir undirbúning nýs tímabils.",
"title": "Rosenior gæti verið að landa áhugaverðu starfi"
}