Greinir frá fósturláti - Hafði vakið athygli þegar hann fékk frí í vikunni
DV.is [Unofficial]
June 28, 2026
Liverpool-maðurinn Cody Gakpo og kærasta hans, Noa van der Bij, hafa greint frá því að þau hafi misst ófæddan son sinn á meðgöngu.
Noa skýrði frá sorgarfréttunum á Instagram þar sem hún birti mynd af höndum þeirra yfir prjónuðum barnahúfu og teppi.
„Með brotið hjarta deilum við þeim hræðilegu fréttum að litli drengurinn okkar lést á meðgöngunni. Takk fyrir alla ástina og stuðninginn. Elijah Raphael Gakpo. Að eilífu elskaður. Að eilífu sonur okkar,“ skrifaði hún.
Discussion in the ATmosphere