Kynþokkafyllsta kona í heimi trúlofar sig nokkuð óvænt
DV.is [Unofficial]
June 25, 2026
Knattspyrnukonan Alisha Lehmann hefur greint frá því að hún sé trúlofuð kærasta sínum, raunveruleikaþáttastjörnunni Montel McKenzie.
Lehmann, sem leikur með Leicester og svissneska landsliðinu, deildi gleðifréttunum á Instagram þar sem hún birti myndir af bónorðinu sem átti sér stað í rómantísku fríi við ströndina.
Á myndunum sést McKenzie fara á skeljarnar og biðja Lehmann um hönd hennar. Svissneska sóknarkonan virtist yfir sig ánægð og fögnuðu þau síðan með innilegu faðmlagi.
„Forever & Always,“ skrifaði Lehmann við færsluna ásamt hjarta.
Discussion in the ATmosphere