{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreigdk67mjs2d4odidfbjdnd6t3ybd6hr5crxfhqs5yo3pw7j3mpwx4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpe5ypeas7a2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreid3fiyomhsytfxid3v4la4oqnallxpvoveskl2melnbvhkki2vn5q"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 178390
  },
  "path": "/433/2026/06/27/greinir-fra-fosturlati-hafdi-vakid-athygli-thegar-hann-fekk-fri-i-vikunni",
  "publishedAt": "2026-06-28T13:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool-maðurinn Cody Gakpo og kærasta hans, Noa van der Bij, hafa greint frá því að þau hafi misst ófæddan son sinn á meðgöngu.\n\nNoa skýrði frá sorgarfréttunum á Instagram þar sem hún birti mynd af höndum þeirra yfir prjónuðum barnahúfu og teppi.\n\n„Með brotið hjarta deilum við þeim hræðilegu fréttum að litli drengurinn okkar lést á meðgöngunni. Takk fyrir alla ástina og stuðninginn. Elijah Raphael Gakpo. Að eilífu elskaður. Að eilífu sonur okkar,“ skrifaði hún.",
  "title": "Greinir frá fósturláti - Hafði vakið athygli þegar hann fékk frí í vikunni"
}