United að losa sig við Onana aftur á láni
DV.is [Unofficial]
June 26, 2026
André Onana er á leið aftur til Trabzonspor á lánssamningi frá Manchester United, samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.
Romano greinir frá því að munnlegt samkomulag sé í höfn og að aðeins sé verið að ganga frá lokaatriðum samningsins áður en félagaskiptin verða staðfest. Tyrkneska félagið mun greiða Manchester United lánsgjald fyrir markvörðinn.
Þetta verður annað tímabilið í röð sem Onana leikur með Trabzonspor á láni. Kamerúnski landsliðsmarkvörðurinn er ekki í áætlunum Michael Carrick fyrir komandi tímabil og hefur því verið leitað að lausn á framtíð hans.
Discussion in the ATmosphere