{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreibozdr22qkcrqrbd7k7zn3adnv55gnxmkjoux5pqrr6pqbepqw2se",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp6w53ke2md2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreibvhgppcbzpyg74nz2uxqf5uclbobutvsgzcri6sd4ar75a2ace5i"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 141540
},
"path": "/433/2026/06/25/united-ad-losa-sig-vid-onana-aftur-a-lani",
"publishedAt": "2026-06-26T12:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "André Onana er á leið aftur til Trabzonspor á lánssamningi frá Manchester United, samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.\n\nRomano greinir frá því að munnlegt samkomulag sé í höfn og að aðeins sé verið að ganga frá lokaatriðum samningsins áður en félagaskiptin verða staðfest. Tyrkneska félagið mun greiða Manchester United lánsgjald fyrir markvörðinn.\n\nÞetta verður annað tímabilið í röð sem Onana leikur með Trabzonspor á láni. Kamerúnski landsliðsmarkvörðurinn er ekki í áætlunum Michael Carrick fyrir komandi tímabil og hefur því verið leitað að lausn á framtíð hans.",
"title": "United að losa sig við Onana aftur á láni"
}